Monthly Archives: July 2009

Sæll VIII

Hef verið að prófa pontíus-æfingar. Er ekki alveg nógu sáttur við þær. Held ég skipti aftur í pílates.

Sæll VII

Ástkær maður, blökkumaður, blökkublökkumaður og blökkublökkublökkumaður okkar, Dkembe Josef Mtumbo, lést á Landspítalanum þann 21. júlí síðastliðinn. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á körfuknattleiksdeild ÍR.

Sæll VI

Fór upp á fjöll um daginn. Sá Toyota Camry úti í miðri auðninni. Áttaði mig á misskilningnum. Drakk kaffi. Fór heim.

Sæll V

Um daginn tók ég fyrsta skrefið í átt að því að stofna fjölskyldu. Keypti mér station-bíl.

Sæll IV

Eiginmaður Láru Ólafsdóttur miðils sem hefur kremjublæti er búinn að mæla sér mót við hana í kvöld.

Sæll III

DP fasteignir bjóða upp á makaskipti. Af einhverjum ástæðum finnst mér það viðeigandi.

Sæll II

Er ég einn um að detta í hug stóll með rosalega stórt höfuð áfast (ekki ósvipað höfði Haraldar Ólafssonar veðurfræðings, nema miklu stærra) þegar ég heyri orðið höfuðstóll?

Sæll

Ég hefði átt að fá mér lán bundið við skynjaða greindarvísitölu Steingríms J. Sigfússonar í október 2008.