Monthly Archives: August 2009

Sæll XVII

Der Fibonazi: „EINS! EINS! ZWEI! DREI! FÜNF! ACHT! DREIZEHN! EINUNDZWANZIG!“

Sæll XVI

Rosalega langar mig til að geta pantað mér skonsu á veitingastað, bara til að geta sagt: „Þjónn! Það er hár á skonsunni minni!“

Sæll XV

Er að fara að sprey-tana húsið hans Árna Páls Árnasonar á eftir. Hver kemur með?

Þættir úr daglegu lífi

Ég spurði hana hvort það væru til svartir ruslapokar. Hún ásakaði mig um að vera með kynþáttahatur.

Sæll XIV

Er að reyna að koma þessu í umferð: ÉG ER ALGJÖR ÖFUNDUR JÓNASSON ÚT Í ÞIG! (Lýsir öfund.)

Sæll XIII

Góðan daginn Konráð. Þakka þér fyrir spurninguna “Hvernig heldur Þór Saari við útliti sínu sem nýfætt barn?” sem þú sendir á Vísindavefinn. Við sjáum okkur því miður ekki fært að svara henni þar sem við teljum hana falla utan við verksvið okkar. Kveðjur Ritstjórn Vísindavefsins.

Sæll XII

Að mjög óvísindalegri könnun lokinni hef ég komist að þeirri niðurstöðu að HiC er ekki það sama og TaB.

Sæll XI

Wollen Sie mit mir rodstewarten? (Viltu nokkuð koma með mér á tónleika með Rod Stewart?)

Sæll X

Úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: „Sérstakur skattur, MILF-skattur, verði lagður á tekjur myndarlegra eldri kvenna.“

Sæll IX

Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúraútidyralyklakippuhringur. Iðnaðarmannahúsasysturdótturbróðurföðurlyklakippa. Já, dömur mínar og herrar, ég spara greinilega ekki stóru orðin.