Orðatiltækið „að vera fastur á milli steins og sleggju“ á rætur sínar að rekja til þess þegar menn voru fastir á milli Steins Ármanns Magnússonar og Kristins H. Gunnarssonar (Kidda sleggju) í gamla daga.
-
Home > Archives for September, 2009
Orðatiltækið „að vera fastur á milli steins og sleggju“ á rætur sínar að rekja til þess þegar menn voru fastir á milli Steins Ármanns Magnússonar og Kristins H. Gunnarssonar (Kidda sleggju) í gamla daga.
Hvað eru margir blökkumenn með afró, nei ég meina, hvað eru margir starfsmenn hjá Hafró?
Nú vita flestir að útivistarmál voru aldrei fleiri hjá héraðsdómstólunum en á seinasta ári. En hvað um ferðalagamál og „djamma með vinkonunum“-mál? Þeirri spurningu er ósvarað.
Mér finnst það rosalega gott hjá þeim Benny, Björn og Agnethu að halda hópinn, þrátt fyrir að leiðir þeirra og Anni-Frid hafi skilið, og koma á fót lögmannsstofu.
Eyþóri Arnalds líður best þegar hann er umvafinn af sellófan, og sú hrifning er augljóslega gagnkvæm.
Bíddu var ég einn um að hafa verið skotinn í söngkonunni í Hanson á sínum tíma eða?
Þegar ég var lítill var ég frekar ósáttur við umboðsmann barna. Mér fannst hann ekki vera að gera nóg fyrir mig. Hann reddaði mér aldrei neinum giggum.
Eiður Guðnason, fyrrverandi umhverfisráðherra, fæddist í borginni Liyekjanamsk í Rússlandi og er kenndur við hana. Þetta veldur skemmtilegum misskilningi þegar stungið er upp á því að heimsækja hann: „Eigum við að kíkja á Liyekjanamsk-Eið?“
Hugmynd að falinni myndavél: Þeim sem hafa leikið aðalhlutverkin í Stundinni okkar veitt raflost á kómískan hátt. Þátturinn gæti heitið Kílówattstundin okkar.
Nikita Khrushchev fór á Geirsnef og fékk sér bragðaref. Þá komu Brezhnev og Stalín Jósef og með lygavef náðu þeir af honum bragðaref.