Öðruvísi mér Unnur Brá Konráðsdóttir.
-
Home > Archives for October, 2009
Heilsuverndarsvið Reykjavíkurborgar vill koma því á framfæri að fjöldi fokkhausa í andrúmslofti hefur aukist seinasta árið eða svo.
„Gasalega fer þessi slæða þér vel, Silli minn“ ÉG HELD AÐ HANN SÉ ÞYRSTUR
Viðskiptaráðuneytið auglýsir starf talsmanns neytenda laust til umsóknar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi embættispróf í lögfræði og blæti fyrir notkun greinarmerkja.
Vandamálið við það, þegar ráðinn er aðstoðarmaður sem hefur það hlutverk að segja manni ef það er vond lykt af manni, er að aðstoðarmaðurinn verður fljótt samdauna manni. Lausnin á því vandamáli er að sjálfsögðu að ráða annan aðstoðarmann.
Stuðboltinn Gylfi Zoëga var alltaf kallaður Gylfi Zoëga Moëgadrive á árum áður.
Mig langar rosalega til að leigja bíl sem er bílaleigubíll sem er fyrrverandi leigubíll sem er fyrrverandi bílaleigubíll, bara til að geta sagst hafa leigt mér leigubílaleigubílaleigubílaleigubíl.